|
|
03.01.2009 09:01:41 / ggudny
já nú er komið nýtt ár, best að gera upp 2008 hérna sem snöggvast! Það sem stendur upp ur er eftirfarandi:
Kláraði b.Mus ritgerð Kláraði LHÍ Fór til San Torrini Flutti til Berlínar aftur Varð ólétt Fór til Parísar með Lydíu Fór að spila á víólu fyrir alvöru Skipulagði og framkvæmdi Tónlistarhátíð unga fólksins Fann nýja íbúð og gerði hana upp með tilvonandi eiginmanni Tilvonandi eiginmaður kláraði doktorsverkefnið sitt Byrjaði í mastersnámi í tónlistarfræðum Giftist Jochen Steinbicker Hélt mín fyrstu jól og áramót erlendis Saknaði Íslands, átti góða vini, bakaði fullt í nýja eldhúsinu, elskaði manninn sinn og fjölskylduna sína, var hamingjusöm en samt stundum soldið full af hormónum...
gott ár 2008 vona að 2009 verði eins heillaríkt.
»
21.12.2008 15:13:43 / ggudny
Ég er þreyttari sem aldrei fyrr, sef og borða og afkasta nær engu þess á milli. Maðurinn minn er þeim mun duglegri setur upp hillur, kíttar í gólf, sníðir teppi á heilt herbergi, býr til bretti (sem ég svo olíuber), kaupir í matinn og bakar. Þessi elska, ég reyni eftir bestu getu að launa honum liðlegheitin, meðal annars með því að temja mig í grátköstum, sem æ oftar vilja eiga sér stað hér á bæ. Í gær fór ég til dæmis að hágráta því Jochen missti spýtu á fótinn á sjálfum sér. Hann kveinkaði sér eitthvað og mér varð svo um að ég grengjaði í hálftíma á eftir. J. fékk sem sagt engan tíma til að velta sér upp úr meiðslunum því eins og móðir mín benti mér á, þegar hún heyrði af þessu, er ég snillingur að beina athyglinni að sjálfi mér hvað sem kemur upp á. Í dag græt ég bara af því bara, ég er ekki einu sinni leið inni í mér, ég þarf bara að gráta það er eitthvað svo losandi.
En eins og ég draup á hér í byrjun þá stöndum við í stórræðum við teppalagningu á tilvonandi barnaherbergi og skipulagningu þvottahússins. Það er nefnilega farið að styttast í meðgöngulok og okkur varð það skyldiega ljóst að við þurfum að hafa hlutina í sæmilegu standi.
Fyrir utan að hafa fest kaup á nýlegum stórglæsilegum dökkbláum Siver Cross barnavagni sem nýr kostar 1600 Evrur (en við fengum á 300). Þá höfum við ekkert undirbúið. Fólk hefur hins vegar gaukað að okkur ýmsu eins og vöggu sem við fengum frá Gerði Gunnars og svo fengum við bala og skiptikommóðu frá bróður Jochens. Frá honum fengum við einnig hitalampa og eitthvað dót sem ég skil ekki.
Mamma kemur með gömlu barnasængina mína núna um jólin auk fatnaðar af Ragnari Árna sem nota bene er orðinn 17 ára gamall, sem þýðir að eg er orðin 27 kræst!!
Teppið sem fer á barnaherbergið er nú heldur ekkert slor, við fórum í einhverja náttúruteppabúð sem selur sem sagt ekki teppi úr gerviefnum. Þar gerðum við reifarakaup á bútasölunni... barnaherbergið er nefnilega svo lítið að á það passaði bútur af besta teppinu í búðinni. Það er kamellitað ullarteppi sem lítur ekki ósvipað út og kókosteppi nema bara lungamjúkt 
Þetta hefur nú aldeilis verð áhugaverð færlsa um ekki neitt, ég mun halda áfram að skrifa um ekkert hérna á næstu dögum. Mamma kemur annað kvöld og ég hlakka til að sjá hana!! Annars bis bald g.
»
08.12.2008 15:51:01 / ggudny
Jæja í gær var annar í aðventu og við hérna á Þórsgötunni, bjuggum til kanilsnúða og smákökur. Pálína víólukennarinn minn og kærastinn hennar komu til okkar og voru afköstin svakaleg! Bakkelsið rann svo ljúft ofaní mannskapinn að sjaldan hefur annað eins sjést hér á bæ.
Nú er hins vegar byrjuð enn ein skóla vika sú næst síðasta fyrir jólin og ég er alveg æst í að æfa mig, loksins eftir smá hlé! Annars eru mörg verkefni framundan á næstu mánuðum og ég hlakka til að takast á við þau.
Ég hef annars ekkert að segja, hef ekki lent í neinum ævintýrum nýlega enda oftast heima við vegna mikils líkamsþunga!
Mér finnst ekkert sérstaklega skemmtilegt að vera ólétt...
Fólk spyr mann bara út í það, það er eins og ég sé ekki lengur ég, bara einhver hýsill og það er það eina sem fólk sér!! Svo er líka eins og að hausinn á mér sé í þoku, mér dettur ekkert sniðugt í hug, man ekki hvenær á ævinni ég var seinast kjaftstopp en það er núna daglegt brauð. Mér dettur ekkert í hug að tala um við fólk, ætli ég sé í einhverri krísu með sjálfan mig?? Alla vega gaman að þessu, aldrei verið eins hamingjusöm en orðin leiðinleg í staðinn!! HAHAHAHA það er ekki á allt kosið í þessu lífi!!!
Ástarkveðjur g.
»
02.12.2008 10:38:59 / ggudny
já þá er maður giftur og hamingjusamur sem aldrei fyrr!
Brúðkaupið var æðislegt, og hveitibrauðsdagarnir liðu hjá sem hunang! Núna er allt komið í sinn vanagang, nema hvað að svefnhættir mínir eru ekki alveg nógu sniðugir. Ég sofna snemma á kvöldin og svakna svo í klukkutíma klukkan 5 og sef svo frá 6 til 9 eða 10.
Jæja þetta hlýtur að vera einhver innri undirbúningur...
Ég átti afmæli í gær það var fínt ég gerði ekkert allan daginn og svo fékk ég blóm þegar maðurinn kom heim  . Við fengum okkur karftöflusúpuna í kvöldmat sem við höfðum búið til kvöldinu áður í aðventuboðinu okkar.
Aðventuboðið var alveghreint fyrirtak, við sungum jólalög í röddum með píanóundirleik auk þess að renna í gegnum nokkra kafla í Brahms oktett... ekki fulskipað þó!
Núna er ég komin me nýja flugu í hausinn, læra á viola d´amore!! Getur einhver hjálpað mér. ég finn ekkert um þetta á netinu!
»
18.11.2008 09:32:09 / ggudny
Þá er ég byrjuð að skrifa fyrirlesturinn minn loksins, á að halda hann á eftir kl.14.15 spennandi. Hér má maður víst ekki lesa fyrirframskrifaðan texta af blaði svo að undirbúningurinn er dulítið frábrugðinn fyrrri vinnbrögðum mínum. Núna er ég sem sagt að punkta niður hjá mér hvað ég ætla að segja um enduruppgötvun viola da gamaba. Þetta hefur verið einkar skemmtileg vinna og er ég margs vísari um hljóðfærið, samfélags-og tónlistarsöguna.
Annars gekk sörubakstur með eindæmum vel á helginni. Við dísa bjuggum líka til hummus sem ég hef verið að maula síðan á sunnudag, hef svo ekki fengið neinn botn í þann vindgang sem á sér stað í mínum innri þar til við morgunverðarborðið áðan þegar mér fannst ég eitthvað kannast við lyktina af hummusnum... Sem sagt kjúlkingabaunir í olíu ekki efst á óskalistanum hjá mér í framtíðinni!!
Æ, ég get ekki hamið mig alltaf verð ég að tala um kúk-piss-prump það er eins og ég hafi aldrei komist af því þroskastigi. Ég bið því lesendur hér afsökunar og mun reyna að hemja mig í framtíðinni. Efast um að það takist mér finnst þetta bara mjög heillandi umræðuefni. OK nú er ég hætt!!
Lydía kemur á eftir ví!!!! Thomas bróðir Jochens á morgun, María og Solveig Birgitta systir á fimmtudaginn, Sigrún kom í gær!! Allt að bresta á!!! Víííííí
»
16.11.2008 08:59:12 / ggudny
Þá er kominn sunnudagsmorgunn enn einu sinni. Ég hef það gott inni í stofunni minni þar sem allt er vel til tekið og tilbúið fyrir átök dagsins. Átök dagsins verða að gera fyrirlestur um Viola da Gamba og endurkomu hljóðfærirsins í nútimanum og að baka sörur. Gærdagurinn var einnig tekinn með trompi, þvegnar voru fleiri þvottavélar en 3 (sem sagt 4) og svo er baðherbergið komið i stand, sturtuhengi og fleira fínerí, það var bökuð kaka (hún er ekki vond... en bara ekki eins og hún átti að verða) og svo fór ég á markað í lok dagsins og lenti á glimrandi rósatiboði: 60 rósir á 10 Evrur. Ég skellti mér á það og nú líður mér stórkostlega í rósum settri nýþrifinni íbúðinni. Maðurinn sefur og ég er að gera allt annað sem mér dettur í hug en að byrja á fyrirlestrinum.
Á eftir kemur Díselín til mín og við ætlum að baka Sörurnar, Palli ætlar að líta við og spila fyrir mig Paganini og eitthvað fleira skemmtilegt. Ég hlakka til að heyra í honum, þessari elsku. Svanur lítur kannski við svo það verður af nægu af taka svo núna ætla ég að koma mér að verki!!
Ps. nú eru bara 6 dagar í brúðkaup, vá hvað þetta er skrítin tilfinning!!
»
13.11.2008 21:32:40 / ggudny
Ég fór í hraðklippingu eftir skóla í dag. Konan klippti í burtu alla vankanta á 7 mín. og fyrir það borgaði ég 10 Evrur. Er að fíla það, á pínu erfitt með að fara í klippingu og enda yfirleitt á því að klippa mig sjálf eða að hárið verður svo slitið að ég get ómögulega greitt það.
Annars var langur dagur í skólanum í dag. Ég fór í hljómfræði þar sem mér finnast allir vera vitlausari en ég nema einn gaur frá Makedóníu hann er pínu klár. Ég er eiginlega alveg búin að fatta Funktional harmoníuna þótt að mér finnist sætin sem við notum heima vera skýrari þá verð ég að viðurkenna að hérna er hugsað miklu meira um tónlistina sem slíka í greiningu og líka égum við að leysa alls konar dæmi þar sem við verðum að semja áframhaldið í samræmi við hitt og þetta gefið en ekki bara fjögurra radda kóral með snotrum sópran og myndarlegri bassalínu þar sem x, y og z verður að koma fyrir. Sem sagt pínu öðruvísi hugsanarháttur sem maður verður að tileinka sér.
Við fengum þvottavélina okkar úr viðgerð í dag, hún er sem sagt hætt að slá út öryggið í þvottahúsinu og hætt að eyðileggja fötin hans Jochens... eins og góðvinir muna kannski, þá eyðilagði þvottavélin til dæmis Boss jakkafatabuxurnar hans þegar ég ákvað að setja þær í þvott um daginn. Nú verða engin föt eyðilögð meira enda hefur mér verið bannað að þvo af tilvonandi eiginmanninum... nema þá sokka og nærbuxur... höhöhö!
Annars fékk ég ansi góðar fréttir í gærkvöldi, allt lítur út fyrir að mín ástkæra systir Anna sé að flytja til mín næsta haust með sinni fjölskyldu. Þetta eru stórfréttir enda höfum við ALDREI búið í sama landi. Ég hlakka alveg ofboðslega til og vona að þetta gangi eftir.
Mér fannst svolítið fyndið þetta með nýja litinn á Valhöll, hefði jafnvel fundist það enn fyndnara ef hún hefði verið máluð í Framsóknarlitnum... Því miður virðist það ekki landanum í blóði borið að mótmæla en ég vona að allar stéttir taki höndum saman og mótmæli því sem er að gerast, það er til hæfara fólk til að takast á við vandann. Við almúginn erum ekki ábyrg fyrir því sem er að gerast og það er borgaralega skylda okkar að mótmæla. Eins mikið og ég aðhyllist friðsamleg mótmæli þá sýnir reynsla annarra landa að þau bera lítinn árangur. Ég er ekki að mæla með ofbeldi og eygnatjóni þvert í mót, heldur verður að stöðva almennan framgang Alþingis td. með því að loka fyrir inn og útgönguleiðir. Jæja ég veit ekki hvað ég er að predika... þetta eru einhverjar leifar þess að koma af prestum!
En það eina sem ég segi er eitthvað verður að gerast!
PEREAT
»
12.11.2008 18:10:34 / ggudny
»
06.04.2008 16:15:17 / ggudny
Jæja þá fer nú að líða að stóru stundinni.
11.apríl sem er á föstudaginn, klukkan 16.00 í Salnum Kópavogi. Mozart kvintett nr.3 Ysaye sónata nr.2 Beethoven Kreuzer sónata og Bloch Nigun
Þannig hjómar prógrammið be there or be Δ
»
13.02.2008 18:50:11 / ggudny
Jæja eftir langa bið, fá nú tryggir lesendur þessarar netdagbókar
eitthvað til að gleðjast yfir.
Guðný aka ggudny er snúin aftur með nýja og betri tölvu!
Ég hef ákveðið að snúa vörn í sókn og deila gleðinni með ykkur
kæru lesendur.
Sóknin felst í því að a) hætta að kvarta b) klára ritgerðina
mína og c) vera súper dugleg að æfa mig fram að lokatónleikunum
mínum sem verða í
Salnum föstudaginn 11.apríl klukkan 16.00.
Þetta verða vitanlega sérlega skemmtilegir tónleikar með verkum
eftir Bach, Beethoven,Ysaye og Bloch. Ég hvet alla til að mæta og
best er að taka daginn frá sem fyrst og taka frí í
vinnunni!!
Bestu kveðjur Guðný
»
26.10.2007 23:31:57 / ggudny
Já þeir sem héldu að það yrði gaman að fá mig heim frá útlandi eru sennilega pínu vonsviknir núna því að til mín hefur varla spurst í legri tíma. Ég bið fólk að afsaka, ég er bara að klára skólann og fer ALDREI út. Við eigum að skila B.Mus ritgerðinni ...fyrstu skil eftir 2 vikur, það eru endalausar æfingar og verkefni og ég eyði öllum kvöldum í að æfa mig eða gersamlega búin fyrir framan imbann... ég er inni í öllum þáttum á rúV og SkjÁ 1 sem er nú aldeilis áhugavert er það ekki? Ég hringi ekki í fólk og er bara leiðinleg. Þannig að ég bara biðst afsökunar á þessu. En annars spilaði ég áðan á tónleikum og það var mjög skemmtilegt. Ég er farin að læra líka á víólu og það er ógisslega gaman... útskýrir líka af hverju það er svona mikið að gera... Spilaði einmitt á bæði hljóðfæri í masteklass í dag og það var skemmtilegt  Svo er maður líka að fást við kennslu, ég er með 3 yndislega nemendur og það er frábært einn þeirra er meira að segja farinn að spila abcd utanað ótrúlega vel eftir aðeins 1 og hálfan mánuð juhú!! Hann getur líka spilað alla tónana á fiðlunni í 1.stillngu í röð upp og niður. Ansi flott það!! jæja nóg af mér í bili farin að sofa á föstudagskvöldi,,,
»
15.10.2007 15:45:11 / ggudny
Í gær var á dagsskrá RÚV þátturinn Listin að lifa. Í þættinum var fylgst með ungri stelpu sem langt er leidd af átröskunarsjúkdómi. Þátturinn hafði sterk áhrif á mig og ég vona að sem flestir eigi kost á því að sjá hann, þar er ansi margt sem vekur mann til umhugsunar.
»
03.10.2007 23:44:31 / ggudny
Jæja ég tók eftir því að það var verið að mála skólann... gleymdi því reyndar jafnóðum. Stuttu seinna hitti ég einhvern í dyragætti og tók manneskjuna tali, skyndilega þar sem ég hallaði mér upp að húsveggnum varð mér hugsað til þess að ég hafði sér málningarmenn sniglast þarna stuttu áður. Ég leit á vegginn og sá að hann var í nýjum lit og ákvað reisa mig við... kjóllinn minn er núna bleikur með gráum skellum.... TÖFF!
»
28.09.2007 12:52:48 / ggudny
Já gott fólk þessi vika hefur verið ansi strembin, próf og heimalærdómur æfingar og kennsla.
En helst er nú frá því að segja að ég er byrjuð að læra á Víólu þannig að núna er ég að læra á víólu og fiðlu.
Ég keypti mér Mbox sem er upptökugræja ógesslega flott og með henni fylgdu 6 forrit gefins, forrit sem mig hefur langað í lengi og ég vissi ekki að þau fylgdu með svo að það var nú heldur betur glaðningur!!!
Jochen kemur á föstudaginn eftir viku og núna á eftir er ég að fara með mömmu í Stykkishólm sem er gersamlega æðislegt!
Annars er ég bara að fara að spila í masterklassa á eftir hlakka til!
Kærara kveðjur G.
»
19.09.2007 16:28:22 / ggudny
Minni kæru vinkonu Hrund Þórsdóttur voru í dag veitt íslensku barnabókaverðlaunin, fyrir fystu bók hennar Loforðið.
Ég er að spirnga af stolti. Það lýsir af henni hvert sem hún fer og af hverju sem hún gerir!
»
Síður: 1 2 3 ... 26
|
|